Skilmálar

Bubbi.is netverslun selur varning tengdan Bubba Morthens.
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla hefur borist færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur milli þín og bubbi.is netverslun. Sjá nánar afhendingarskilmála hér að neðan varðandi listaverk Bubba Morthens.

Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla. 

Seljandi

Seljandi er ÁKM. kt. 550210-0450

Verð

Verð í vefverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK) að undanskyldum listaverkum. Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar

Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í netverslun bubbi.is.
Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Eurocard/Mastercard.
Netverslun bubbi.is notar örugga greiðslusíðu frá Borgun á Íslandi.

Afhendingarskilmálar

Vöruafgreiðsla listaverka Bubba Morthens eru afhent árið 2022 í Kringlunni.

Fyrsta opnunarhelgin er 2-4 desember og er opið frá 12.00 – 18.00.

Nánari opnunartímar til að sækja textaverk í Kringluna verða auglýst á síðunni. 

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:

– Varan skal vera ónotuð og í söluhæfu ástandi.
– Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum.
– Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
– 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.bubbi.is eru eign Bubba Morthens. Öll afritun og endurdreifing er bönnuð. Bubbi Morthens er skráð vörumerki í eigu Bubba Morthens og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Bubba Morthens.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Hafa samband

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið bubbi@b3b8a3.bartholomew.shared.1984.is ef einhverjar spurningar vakna.