Skip to content

Afhending afmælisverka

Bubbi gefur sér tíma í að handmála hvert afmælisverk og gerir ráð fyrir allt að tveimur vikum til að vinna verkið. Þegar þitt verk er tilbúið færðu tölvupóst með öllum nánari upplýsingum um afhendingu.

Textaverk · Handmálað frumverk · 60 × 60 cm

Afmælisverk Bubba – handmáluð frumverk

195.000 kr.

Afmælisverk Bubba  – handmáluð frumverk

Ef þú gætir valið eina laglínu úr lagi Bubba til að eiga fyrir lífstíð – hvaða línu myndirðu velja?

Í tilefni af 70 ára afmælisári sínu skapar Bubbi 70 persónuleg frumverk. Hvert verk verður handmálað með indversku bleki á hágæða pappír og kemur innrammað í hágæða svarta álprófíla  með UV vörðu glampafríu gleri.

Þú velur eina laglínu eða stutt textabrot úr einu af lögum hans, að hámarki 20 orð. Bubbi gefur orðunum form og útfærir verkið á sinn einstaka hátt.

Verkin eru 60 × 60 cm. Hvert þeirra er frumverk, skapað sérstaklega fyrir þann sem velur orðin.

28 eintök eftir

0/20 orð

Sérunnið textaverk

Verkið er handskrifað og handmálað frumverk sem Bubbi Morthens vinnur sérstaklega fyrir þig út frá textanum sem þú velur.

Bubbi hefur frjálsar hendur við listræna útfærslu verksins, þar á meðal handskrift, uppsetningu og útlit. Hvert verk er einstakt og ber sín sérstöku einkenni.

Þar sem verkið er unnið samkvæmt þínu textavali er ekki boðið upp á almennan skila- eða skiptirétt. Þetta hefur ekki áhrif á lögbundin réttindi þín ef verkið er gallað, skemmt eða ekki í samræmi við það sem samið var um.

  • Handmálað frumverk eftir Bubba
  • Hvert verk einstakt
  • Þinn texti, allt að 20 orð
  • Afhending
Vörunúmer: 2670 Flokkar: , ,