Afhendingarmáti
Textaverkin verða afhent í Kringlunni í nóvember, þar sem Bubbi verður með tímabundna verslun. Verkin eru ekki send í pósti en hægt er að fá annan aðila til að sækja verkið gegn framvísun pöntunarnúmers.
Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma má finna hér.
Ef það er eitthvað sem við getum aðstoðað þig með, sendu okkur endilega póst á [email protected].
Textaverk · Svarthvítt · 30 × 30 cm
Rómeó og Júlía – Allur textinn
45.000 kr.
Rómeó og Júlía – allur textinn
Lagið „Rómeó og Júlía“ – stærð 30×30
Vandað, áritað og vottað textaverk af handskrifuðum texta Bubba Morthens
Textaverkið er gefið út í takmörkuðu upplagi, aðeins 50 eintökum. Hvert eintak er númerað og áritað af Bubba og því fylgir upprunavottorð.
Textaverkið er innrammað í hágæða svarta álprófíla með UV vörðu glampafríu gleri sem ver verkið gegn umhverfisáhrifum. Verkin eru prentuð á hágæða mattan archival graphic art pappír með UltraChrome™ pigement bleki til að tryggja hæstu gæði.
„Í fyrsta sinn birtist textinn í heild sem textaverk, í upprunalegri gerð eins og Bubbi skrifaði hann í dagbókina sína á Staðarfelli árið 1984, þar sem lagið varð til. Textinn tók síðar smávægilegum breytingum, en hér gefst tækifæri til að sjá hann eins og hann var áður en lagið varð að þeirri útgáfu sem við þekkjum í dag.
Uppselt
- Takmarkað upplag
- Hvert verk einstakt
- Áritað og númerað af Bubba
- Afhending





